English

Í kjallaranum á ég samansafn af garni til c.a. 10 ára og í tilefni af 10 ára afmæli birgðanna ætla ég að setja mér markmið fyrir árið 2009.

Árið 2009 geymir 52 vikur

Árið 2009 geri ég 52 húfur

Húfurnar verða sýndar HÉR á 52 mismunandi hausum

Engar 2 húfur mega vera eins og allar verða þær að koma úr mínu eigin höfði

Í húfunum má bara vera það garn sem til er í kjallaranum. Fyrsti dagur ársins er fimmtudagur. Hvern fimmtudag ársins 2009 set ég inn mynd af nýrri húfu og val garns í næstu húfu, alls 52 sinnum.

                        

             

  

Eins og sjá má á garnið sér ýmsa staði. Það er ekki bara í garnhillunum sem voru smíðaðar sérstaklega fyrir garnið. Slatti er í pokum hér og þar, kössum, myndarömmum og ég veit ekki hvað. Hef þó nánast náð að halda mig við að geyma það í kjallaranum á vinnustofunni minni. Kannski gott markmið væri að koma ÖLLU garninu sem ég á í hillurnar fyrir lok ársins...

Edda Lilja Guðmundsdóttir   snigla@snigla.com  Gsm:8212542